Long time since my last confession... 'Eg hef ekki nennt að gefa þessu bloggi af mínum spare-time, til að skrifa nokkur orð. Það er nokkuð sem ég verð að fara að laga. Ekki er mikið að frétta... maður á sér ekkert líf, gerir ekkert annað en að vinna og sofa... djamma kannski stundum inn á milli. En helgarplanið er að djamma mikið því allir eru einir heima og svo eru Wig Wam á landinu þannig að maður kíkir kannski á þá, og maður verður að nýta fríhelgina sína eins og maður getur! Vonandi nenni ég bráðum að vinna meira í síðunni minni......
Ciao amigos
Posted at 04:40 am by DisaSkvisa
Permalink
Þetta er nýja bloggið mitt. 'Eg er enn að læra inn á það en engar áhyggjur, ég er fljót að læra. Er ekki alveg sátt við útlitið á síðunni, þótt borðinn sé nú ágætur :) Sindri lagði mikla vinnu í hann en... það vantar eitthvað meira :)
Margt hefur gerst á þessu ári þótt það sé nú bara hálfnað. 'Eg varð tvítug, afi dó, ég fór til Parísar yfir eina helgi með frönskubekknum mínum, ég varð stúdent og hélt upp á það með Mallorca ferð, og hann Burkni (9 og hálfs árs gamli páfagaukurinn minn) dó núna 2.júní og var hann jarðaður á sama degi. Mikil sorg fylgdi því en ég er að jafna mig...
Adios amigos
(skrifa meira næst)
Posted at 08:16 am by DisaSkvisa
Permalink